Beverly Hills 90210

02.01.2007 03:12:16 / tryggvi

Let it be a lessson to all of you

Konni sagði eitt sinn "That´s Just What Happens"

Sorry Teitur en við bara Urðum

.Takk Fyrir

- Snævar & Halli


» 26 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 20:00:51 / yfirvold

Jólasveinninn þarf að vera góður að ljúga..

Jammogjú, búnað horfa á alla 'prison break' þættina þannig ég hef ekkert mikið annað að gera en að henda inn bloggi, it's been a while.. Þetta jólafrí er búið að vera geggjað, oog ennþá alveg 7 góðir dagar eftir (:
heeeeeeeello benjamin!!!!
Halli frekar slappur á því, ákvað bara að eyða áramótunum í RVK með fjölskyldu sinni? þúst coommon, hver gerir svoleiðis vitleysu..

Svo var maður að kveðja Arnar Þór í dag, kallinn bara fluttur suður fyrir fullt og allt, badsjit. 

*Fæ sms frá 5812345 (Domino's)* sem segir mér að ég meigi sækja pizzuna mína eftir 10 mín á Fjarðargötu 11.. that's gonna be a bit of a problem. Svona í nítjánda skiptið sem ég fæ sms frá þeim án þess að panta pizzu, óskuðu mér meira að segja gleðilegra jóla núna um daginn. hvað er í gangi?

Núna í gær klukkan 15:00 lokaði Ábær alveg endalega, það er samt alveg kúl því maður er að heyra þær ljúffengu sögusagnir um að það eigi að koma Subway þar í staðin.

maður fer bara að verða svangur

Ég eyddi áramótunum mínum fyrir utan Víðihlíð 6 með Stykka, Davíði, Teit, Eika, Ronna, Pálma & Frigga Lax. Svo var farið á ball á blönduósi, frábært ball en dvalaði svo út.. fékk meira að segja frítt inn! Það kom bara einhver gamall ringlaður kall til mín og sagði:
gamli: "eeuugghh viiiltu miðann minn?"
ég(einsog dóni): "eihh thx old man happy new year" og fór inn.. sparaði mér þrjúþúsund kjéll þar takk fyrir takk.. eina 16 ára ballið á svæðinu og geiri var ekkert feiminn við að mjólka liðið almennilega.
Svo gerði maður nokkur áramótaheit, þau eru alltaf vinsæl hérna meginn.
Ég var ánægður með áramótaskaupið, örugglega það besta sem ég hef séð! æðislegt líka að sjá framan í Jón Gnarr og Þorstein Guðmunds þarna. Eldri kynslóðin hinsvegar kann minna að meta og setur á sig spurningarmerki.

"Að útskýra hvað sé fyndið fyrir einhverjum sem skilur það ekki, er ekkert ósvipað því að sýna hundi spilagaldur"


enjæja, þetta er komið útí vitleysu, hef þetta ekki lengra í bili..

.takk fyrir 2006
-Snævar


Hvar varst þú klukkan 23:59, 31 Desember?


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 15:01:39 / yfirvold

Veikindi í Bland Við Geðshræringu

Hvað er eginlega að þér Snævar þú drullast aldrei til að gera neitt hérna, við gætum alveg eins bara sleppt því að vera vinir meina cammon ?


Ég er núna svona fyrst að vakna til lífsins aftur eftir langan tíma í einangrun frá umheiminum vegna veikinda og grimmri tölvuleikjaspilun |Play Hard Go Pro|  Ég er ekkert búinn að sofa mjög lengi .. taktu svo þetta "mjög lengi" og plúsaðu með 8 og margfaldaðu svo með 2 .. þroskaheft alveg.
Í morgun kom ég heim klukkan hálf 8 eftir að hafa setið í samastólnum í 9 klukkutíma alveg ótrúlega aðlagandi og getnaðarlegur á því að spila Heroes III heima hjá Snævari og búinn að slökkva á símanum og passa mig á því að gefa ekki upp upplýsingar um hvar ég væri staddur svo við gætum nú fengið að vera hip og kúl í fryði (ef ég og snævar værum það svalir að vera spila á netinu værum við orðnir legends í leiknum og fengum ótakmarkaða virðingu á spjallborðum um tölvuleiki á netinu og gætum labbað inná hvaða netkaffihús í heiminum og fengum svona heiðursæti og ofurtölvur og myndum spila frítt ..þetta er ekkert djodd)

 

En já eins og ég segi þá kom ég heim frá Snævari kl. hálf 8 í morgun og heyrði í Mömmu og Pabba uppi vera að borða morgunmat læddist ég alveg þvílíkt lúmskt inní herbergi gekk ekki betru en það en ég sparkaði í skóhilluna á leiðinni og fór svo uppí rúm og setti upp þvílíkt sanfærandi "ég er sofandi andlit" . ég gef sjálfum mér 4.5 í einkun fyrir þessa tilraun til að læðast óséður en ég verð að taka með í reikninginn að ég var sýrður í hausnum og ekki að hugsa rökrétt. en svo fóru Móðir og Faðir í vinnuna og ég fann það bara á mér að ég var ekkert að fara að sofna á næstuni og ætlaði bara að sparka því yfir sjónvarpinu en þá varð ég fyrir mestu vonbrigðum lífsmíns útí Sjónvarpsdagskránna ég kveikti á sjónvarpinu og voru þá ísland í bítið sem er alveg hægt að horfa á án þess að fella tár og vorkenna sjálfum sér en þegar það var búið byrjaði Bold and the beautiful sem er hreinn horbjóður úr helvíti og var ekki lengi að skipta yfir á bíó rásina en neinei var ekki bara kvikmynd þar í sýningu sem hét þytur í laufi..............svekk...............  og skipti þá yfir á sirkus en þá var greinilega bara "tilbyðjum Björk klukkutíminn" þar sem það voru bara lög með henni .......... annað svekk.........  og var eginlega bara ráðalaus en svo gerðist það loks á endanum að BandtheB lauk .. þá horfði ég á auglýsingar sem voru á milli sjónvarpsefna en allt kom fyrir ekki eftir BB byrjaði ekki bara Martha Stewart og var mér öllum lokið og  lokaði ég augonum og kreppti saman hnefana og byrgði inní mér reiðina og vonbrigðin og náði að gráta ekki.

:OcfzY4crIwJtjM:http://www.nndb.com/people/495/000023426/martha-stewart.jpg" width="109">           .....ojjbarasta!!


en þúst ertu að skjóta ? er hægt að vera eitthvað óheppnari með sjónvarpsefni þetta drill ætla ég aldrei að endurtaka aftur


En já að öðru ...Bræður mínir heittelskuðu þeir Matti og Hugi komu heim í dag og fynnst mér það alveg þvílíkt brill og gaman að fá að sjá þá aftur eftir langa fjarveru , ég fer ekki beint í jólaskap þegar jólinn nálgast en ég fer í svona mitt eigið jólaskap þegar þeir koma heim um jólin og fynndist mér ekki vera jól án þeirra og svo auðvita mömmu og pabba


Geðveikt Allen Iverson sem hætti hjá 76ers fyrir stuttu er nú kominn í Denver Nuggets og er þörf fyrir honum þar þar sem Carmelo Anthony er í 15 leikja banni fyrir slagsmál í síðasta leik þar sem hann og félagar hans í Denver slógust við leikmenn New York Knicks sösss söss sösss!!


 

Image

slagmálahundurinn Anthony       og hérna er mynd af liðsfélaga hans Allen Iverson

Djöfull er Anna Molly með Incubus massive gott lag og eru kannski sumir að hugsa núna "djföull er hann mikill phoser að fýla bara frontlagið með þeim á nýjuplötuni blablabla"  en sendi ég þá fokkjú til ykkar sem eru að hugsa þetta ef það eru þá einhverjir að hugsa þetta hehe.. en þetta er bara þroskaheft gott lag en ég er ekki búinn að stúdera mikið nýja efnið með þeim en ég fer að koma mér í það en ég er ánægður með það sem ég hef gefið mér tíma í að stúdera so far allavegna og ég fer á tónleikana og hlakka mikið til verður eflaust vígaleg svaðilför


en svona yfirlit yfir mína síðustu daga hafa bara verið ég meiddur og ekkert geta æft og svo þegar það fór að lagast eitthvað þá varð ég veikur og spilaði drengjaflokks leik síðasta sunnudag (sem við unnum með 25 stigum by the way) í bara engu formi og nettmikið veikur og er mér óhætt að segja að ég hef aldrei verið eins lélegur í einum körfubolta leik og í leiknum á sunnudaginn og er þetta búið að vera að naga mig svoldið að innann síðustu daga en það er annar leikur hérna heima 6. jan og skora ég á þig til að mæta ef þú getur.


en þetta er komið gott í dag

lag dagsins er að sjálfsögðu: Anna Molly - Incubus

.takk fyrir
-Halli


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 04:58:18 / yfirvold

RaksápupáskaR



Eftir langa og leiðinlega bið með smá ídýfu af bókalestri ofan á þá er maður loksins kominn að ljósinu..... PRÓFIN ERU BÚIN!! Núna byrjar þetta nátthrafnatímabil hjá manni, sólahringurinn minn er allanvega í tómu tjóni þessa dagana, heilir 7 tímar af svefn síðustu 48 tíma, en það er bara gaman afþví:haha:


Óska eftir kommenti frá Frigga Lax, spora eða jafnvel bara Gúnda; varðandi þessa mynd

"Já og varðandi þessa '' & 'nei' takka hjá greyjinu, þá er þetta því miður bara fifty/fifty, bara spurning um heppni?"

Ég held að Red Hot Chili Peppers hafi komist eins nálægt fullkomnun í lagagerð þegar þeir gerðu lagið Charlie af plötunni Stadium Arcadium; Jupiter. Ég var að bruna í gegnum bæjinn í dag og þetta lag kom í spilarann og djöfull leið mér vel, tónlist er holl. Ég elska líka lokakaflann alveg feeitast, þegar Kiedis syngur viðlagið aftur og aftur, kemur alveg svona hrollur yfir mann, en þetta er kaflinn á frá (3:26) - (4:37). Svo alveg rétt áður en að Kiedis fær að sleppa útúr sér síðustu orðunum(4:04) er þá ekki bara Frúsíkanturinn mættur með þetta þvílíka þriggja-gítara-sóló sem fær örugglega Jimi Hendrix til að snúa sér við í gröfinni. Flea fær líka alveg að láta ljós sitt skína í þessu lagi, þúst þetta sóló samtvinnað með flottum og hröðum bassaleik frá Flea, þetta gerist varla betra, svo til að toppa endirinn kemur Flea með þennan geeðveikt svala lokahnykk sem fær fólk til að blotna í orðsins fylstu meiningu.. (4:18)

My heart, your skin
This love, I'm in
We don't arrive, without a supply
You're right, I'm wrong
We're freed, belong
Winters' quick sign has
come into light
My heart, your skin
This love, I'm in
We don't arrive, without a supply
You're right, I'm wrong
We're freed, belong
Winter's quick sign has come into light


.: Lag dagins er að sjálfsögðu: RHCP - Charlie :.

.takk fyrir
-Snævar
P.S bloggið Halla hérna fyrir neðan.. tjékkitt! bloggaði yfir kallinn.. bliisar


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 03:43:34 / yfirvold

yekk..

sveiattann!!

Próf á morgun klukkan 2 og ósannfærandi lærdómur að baki og ég er ekkert búinn að sofa frá því 16:03 í fyrra dag og sólarhringurinn eins og hangikjöt og ég er að verða veikur og það er leikur með drengjaflokk á sunnudaginn (hérna heima kl 2), þessi syrpa af athæfum og tilviljunum = life is great ! 

blátt rímar í dag

Hef þetta stutt núna þar sem ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að sofna , hef átt í veseni með það undanfarið hef ekki verið að fúnnkera rétt.

það var samt alveg gjöööðveikur Beverly þáttur áðan það bara klikkar ekki þeir eru alltaf góðir! þar var að fynna alveg shocking drama í Walsh fjölskylduni og kókaín á jólunum.. samhryggist innilega þeim sem misstu af honum .. shit happends

Svo fær Arnar Þór tribute hérna núna fyrir að vera dýrlingur, honum er sko annt um náungan og fólkið í kringum sig og á skilið klapp á bakið fyrir gott framtak *takk takk klapp á bak klapp á bak*

               

allways Coca Cola

Maður Vikunar : Arnar Þór !

Lag Dagsins : Put it Behind You - Keane (þeir eru alveg makalaust góðir og mæli eindregið með nýjustu plötuni þeirra Under The Iron Sea.. það væri ekki amaleg jólagjöf)

.takk fyrir

Halli


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 00:58:58 / yfirvold

Drama og Bingó Kvöld

Já sei sei ! ég fór að sofa klukkan 11 í morgun var frekar andvaka á því í nótt en það var gúdsjit horfði á Beverly Hills sem er alveg topp efni (no homo) ... ég er bara svona týpa . þar sem ég hef dregið mig í hlé sem manneskja og mun hér eftir bara lifa sem týpa.

"maður heyrir það alveg að það hlakkar alveg í Ómari við tilhugsunina að yfirvöldin hans muni koma og taka í lurginn á mér"

JÁ í dag vaknaði ég klukkan 4 ... en já hei hó ég var búinn að gleyma því alveg að ég hrindi í snævar klukkan hálf 8 hann var að fara í próf klukkan 9 um morguninn og hann ætlaði að vakna senmma og læra "aðeins" betur og hann vaknaði ekki við vekjaraklukkURNAR sínar en vaknaði þegar ég hringdi sem er náttla gúdsjit að hafa reddað félaganum. eða mér fynnst það og er frekar ánægður með þessa frammistöðu.. en já aftur í --> JÁ í dag vaknaði ég klukkan 4 í dag og fór að fara í gegnum fataskápinn minn og þar fann ég alskonar kúl stöff en meðal annars fann ég 2 flýspeysur af Bigga handklæðið Arnar Freys töskuna Ingva og töskuna Valda og afa minn. en já strákar þið megið bara ná í þetta drasl annars fer ég að nota það á fullu og geri ykkur öfunsjúka!.

Svo fór á æfingu .. ég er ekki buinn að mæta á síðustu 4 æfingar var meiddur í öxl og ekki taka mark á Konna um þetta mál ... MSN SAMTAL -- :
Halli says: "nei ég verð ekki með í leiknum á morgun ég er meiddur í öxl"
Konni says: "JÁÁJAÁ!! R+ÓLEGUR HALLI ÞÚ DROPPAR EKKI BARA THE BIG SHOULDER BOMB Á MIG HÉRNA!!!!!!"
...en konni er náttla bara full of shit :D og já ég er ekki buinn að mæta á 4 síðustu æfingar og  mér leið eins og ég væri 400 kílóa feitabolla á KFC að éta BBQ kjúklingavængi úr fötu á æfinguni í kvöld .. sjiiit

Svo eftir æfingu fór ég á 10 bekkjar bingóið með hreinsa og þar hittum við Snævar Arnar þór Bjarka og Ísak og stelpunar sem Ísak og Bjarki eru slefandi yfir ! og Óskar Óskar er þarna naglinn úr nesinu.. en já þar sem ég hef aldrei unnið í bingó ég bara sökka í bingo hef aldrei verið góður og svo þegar þetta byrjaði þá var útlitið svart og leit allt út fyrir að ég myndi bragða sömu súpuna aftur og var bara eins og alltaf lélegur EN SVO ÞEGAR VIÐ SPILUÐUM ELL "DUN DUN DUN DUUUN" ÞÁ FÉKK KALLIN          B - I - N - G - Ó !!!!      það var alveg geggjað en nei gaaaat verið þá vann lítil stelpa líka sem var svona 5 ára og með þvílíkan sakleysis svip og ég bara myndi ekki hafa það á samviskuni að eitthvað keppa um bingó vinning við hana svo ég gaf henni bara sigurinn.. en mér leið eins og sönnum Riddara eftir á ..

lag dagsins er : Chelsea Dagger - Fratellis

en já vá geðveikt þá var það ekkert fleira.

.takk fyrir

-Halli


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 05:07:57 / yfirvold

4 tímar í próf....... ohh

"Ég er oft á tíðum alltof alvarlegur persónuleiki, reyni þó að draga úr því einsog ég get með léttu og víðu viðhorfi gagnhvart hlutunum og vinna mig sífellt í betri átt.. Persónuleikabygging er í stuttu máli sagt þroskaskeið. Þessi þroski getur gert mann að betri manneskju, en einnig er hægt að þróa fram leiðinda manneskju sneisafulla af þröngsýni, framtaksleysi og bara tómri vitleysu.
Á hverjum einasta degi breytist maður töluvert, en einhvernmeginn gerir maður sér ekki grein fyrir því."
El Fumador IIV

Er þetta samt ekki bara tilgangurinn?


.takk fyrir

-Snævar


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 01:58:36 / yfirvold

Það Vantaði Gífurlega Mikið Vikt í Kvöld

Í Kvöld vantaði Vikt ! förum nú samt ekki mikið meira útí það nema það má til gamans geta að það fóru 4 hetjur í mission yfir heiði til að bjarga málunum

-"Yfirvöld yfirvöld??" - Ómar R. Valdimarsson

-"jájá, við erum að koma hérnajææææja jón" - Yfirvöldin

-"jah ég var nú ekki að gera neitt" - Jón

-"svooona kallinn minn" - Yfirvöld

hehe ?

En yfir í alvarlegri málefni

Ef maður ef samkvæmur Sjálfum sér og gerir það sem hjartað manns býður manni þá verður maður alltaf sífelt að vera að verja sig fyrir öðrum og verja sanfæringu sína en þúst vegnaþess að sá sem hefur sanfæringu hann getur ekki logið hann verður að segja sannleikann um það sem honum fynnst en sannleikurinn er ekkert sérstakleg vinsæll alltaf þannig að sanfæringin er mjög harður húsbóndi

já þar hafi þið það ... en þá verður það ekkert mikið lengra í dag nema ætlum reyndar að koma aðeins seinna inná það að Noregur sökkar að flestu leiti en ekki öllu

Lag dagsins mun vera : She´s only 18 - Red Hot Chilli Peppers

.takk fyrir 

-Halli


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill